Sumri fagnað á Hvammstanga
Íbúar Húnaþings vestra kveðja veturinn án saknaðar enda hefur hann verið þeim erfiður fyrir margra hluta sakir. Sú hefð hefur verið við lýði á Hvammstanga allt frá árinu 1957 að Vetur konungur afhendi Sumardísinni veldissprota sinn með táknrænum hætti eftir skrúðgöngu íbúa um staðinn. Engin hátíðahöld voru þar í gær en kirkjukór Melstaðarprestakalls ásamt sóknarpresti mætti við sjúkrahúsið og söng fyrir íbúa Nestúns í blíðunni.
„Nú kveðjum við veturinn ekki með söknuði þó, en reynslunni ríkari. Um leið og við fögnum sumarkomu fögnum við þeim árangri sem við höfum náð í baráttu við veiruna skæðu. Nú er enginn í einangrun né sóttkví í sveitarfélaginu og þennan árangur ber að þakka íbúum sem hafa sýnt þrautseigju og samstöðu um að komast fyrir það hópsmit sem kom upp í sveitarfélaginu.
Í dag féllu niður hátíðarhöld sumardagsins fyrsta á Hvammstanga, en allt frá árinu 1957 hefur Vetur konungur afhent Sumardísinni veldissprota sinn með táknræum hætti. Og sumarið heilsaði með fallegum degi. Í blíðviðrinu komu kirkjukór Melstaðarprestakalls ásamt sóknarpresti til Hvammstanga og sungu fyrir utan sjúkrahúsið og fyrir íbúa Nestúns nokkur sumar og vorlög til að fagna hlýju og hækkandi sól,“ sagði á vef Húnaþings vestra í gær.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.