Spjaldtölvuvæðing í Höfðaskóla

„Fyrir stuttu tóku unglingarnir sig til og kenndu yngsta stiginu á ýmis kennsluforrit („öpp“)  í stærðfræði. Þetta gaf mjög góða raun og allir kátir og glaðir,“ segir á vef Svf. Skagastrandar.
„Fyrir stuttu tóku unglingarnir sig til og kenndu yngsta stiginu á ýmis kennsluforrit („öpp“) í stærðfræði. Þetta gaf mjög góða raun og allir kátir og glaðir,“ segir á vef Svf. Skagastrandar.

Unglingadeildin í Höfðaskóla er óðum að spjaldvæðast og samkvæmt vef Svf. Skagastrandar nú er svo komið að flestir unglinganna  koma í skólann með sínar eigin spjaldtölvur. Foreldrafélag skólans ásamt sveitarstjórn Skagastrandar tóku þá ákvörðun að styrkja nemendur um 50% af kaupvirði spjaldtölvu (að hámarki 50.000) og varð sú ákvörðun til þess að flestir nemendur hafa nú eignast tæki. 

„Draumur okkar er að færa spjaldtölvuvæðingu niður á miðstig en spjaldtölvurnar sem voru keyptar inn í unglingadeild í fyrra eru nú flestar komnar inn á miðstig,“ segir Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri í frétt á vef Skagastrandar. 

Þar segir jafnframt að kennarar séu vel meðvitaðir um að spjaldtölva ein og sér bætir ekki námsárangur. Hún sé hins vegar eitt tæki af mörgum í beitingu fjölbreyttra kennsluhátta og í því að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda. Kennarar hafi verið duglegir við að nýta þessa nýju tækni og fylgjast með því sem er að gerast í skólum landsins á þessu sviði. 

„Fyrir stuttu fór hópur kennara til Akureyrar og sótti þar menntasmiðju um notkun spjaldtölvu í kennslu. Einnig fóru nokkrir kennarar í Borgarnes til að hlýða á Ingvar Sigurgeirsson þar sem hann fjallaði um teymiskennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Stefnt er að því að fá hann til að koma til okkar í Höfðaskóla og vera með námskeið um þessa þætti kennsluhátta,“ segir á vefum. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir