Söngperlur Ellýjar og Vilhjálms í Hofi á Akureyri

Á fimmtudagskvöldið verða Söngperlur Ellýjar og Vilhjálms fluttar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Eru þetta lokatónleikarnir, en dagskrána hafa Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar flutt við miklar vinsældir síðan í fyrra vor.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og er miðasala á tix.is og mak.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir