Myndskeið frá Mjallhvíti og dvergunum sjö
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
11.03.2016
kl. 12.04
Anna Margrét Hörpudóttir í hlutverki hinar illu drottningar í Mjallhvíti og dvergunum sjö. Mynd/Hjalti Árna.
Mjallhvít og dvergarnir sjö, leiksýning nemenda í 10. bekk Árskóla, sem er til sýningar um þessar mundir í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki hefur vakið mikla lukku, eins og greint var frá á Feykir.is í gær. Að neðan er myndskeið Skottu Film frá sýningunni en eins og sjá má leggja nemendur skólans allt í sölurnar til að gera sýninguna sem glæsilegasta.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.