Mjög góð viðbrögð við forsölu á Landsmót á Hólum
Forsala aðgöngumiða á Landsmót hestamanna sem fram fer á Hólum næsta sumar gengur mjög vel að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar framkvæmdastjóra mótsins. Heiðar segir að ákveðið hafi verið að bjóða sérstaklega hagstætt verð á aðgöngumiðum til áramóta.
„Nú er hægt að fá vikupassa á mótið á 11.900 kr. en fullt verð á sama passa þegar mótið hefst verður 21.900 kr, en frá áramótum og fram að móti kostar hann 15.900. Einnig var ákveðið að koma til móts við fjölskyldur sem vilja koma á mótið með því að lækka verulega verð á vikupössum fyrir unglinga en þeir kosta aðeins 3.900 núna til áramóta og það verður frítt fyrir börn undir 14 ára aldri. Þetta hefur fallið vel í kramið og forsala er töluvert meiri á þessum tíma en verið hefur fyrir síðustu mót, áhuginn er ekki bundinn við Ísland því að um 40% af kaupendunum eru erlendis,“ segir Heiðar.
Á næstu dögum munu gestir geta keypt afmarkaða reiti á tjaldstæðum mótsins með aðgangi að rafmagni og þá gefst kaupendum nú kostur á að fá falleg gjafabréf með miða á Landsmót, en þeir virðast ætla að verða vinsæl jólagjöf þessi jólin. Miðasala fer fram inn á vefnum landsmot.is og á tix.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.