Kvöldstund með Álftagerðisbræðrum
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
22.04.2016
kl. 15.07
Álftagerðisbræður, ásamt góðum gestum, verða með tónleika í Miðgarði þann 28. maí. Ásamt hljómsveit verður spé- og söngfuglinn Örn Árnason þeim til fulltingis.
„Það verður enginn svikinn af stórglæsilegum tónleikum hinna söngelsku Álftagerðisbræðra, en þeir koma fram í Miðgarði ásamt fríðu föruneyti,” segir meðal annars í fréttatilkynningu um viðburðinn. Miðsala hófst í dag í Blóma- og gjafavörubúðinni á Sauðárkróki og KS Varmahlíð. Miðaverð er 4500 krónur og er eingöngu tekið við peningum sem greiðslumiðli.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.