Klassískar perlur á síðsumri með fiðlusmellum og sönglögum
Þriðju fimmtudagstónleikar sumarsins í tónleikaröð 1862 Nordic Bistro og Menningarfélags Akureyrar verða haldnir í Hofi fimmtudagskvöldið 4. ágúst kl. 20.00.
Hjalti Jónsson, sem alinn er upp á Blönduósi mun, ásamt Láru Sóleyju Jóhannsdóttur og Daníeli Þorsteinssyni, flytja klassíska söngperlur og létta fiðlusmelli í Hömrum þetta fimmtudagskvöld. Alþýðleg og ljúf stemning mun ráða ríkjum og munu gestir tónleikanna geta gætt sér á veitingum bístrósins á meðan tónleikunum stendur.
Lára Sóley er fiðluleikari og spilar með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún var bæjarlistamaður Akureyrar 2015 og þakkaði fyrir sig með eftirminnilegum tónleikum fyrir fulli húsi í Akureyrarkirkju í vor. Daníel Þorsteinsson píanisti er sterkt afl í íslenskri tónlist og hefur m.a. stjórnað Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hjalti Jónsson er söngmaður og gítarleikari. Þau Hjalti og Lára hafa síðastliðin tvö ár haldið fjölmarga tónleika saman um allt land.
Miðasala er á mak.is og í Hofi tveimur tímum fyrir tónleika.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.