Kaffihlaðborð um Verslunarmannahelgina
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf
26.07.2016
kl. 09.57
Í áraraðir hafa Húsfreyjurnar boðið upp á veislur í Hamarsbúð og nú er engin undantekning á því. Ágóðinn hefur ávallt runnið til góðgerðamála í héraðinu og svo mun einnig vera núna.
Kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að hætti Húsfreyjanna verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 30. júlí og sunnudaginn 31. júlí n.k. á milli kl. 14:00 og 18:00 báða dagana.Verið velkomin í Hamarsbúð, Húsfreyjur.
Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.