Jólatónleikar Lóuþræla 2015

Karlakórinn Lóuþrælar halda tvo jólatónleika í aðventunni 2015. Ljósm./BÞ
Karlakórinn Lóuþrælar halda tvo jólatónleika í aðventunni 2015. Ljósm./BÞ

Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í Barnaskólanum á Borðeyri, þriðjudaginn 15. desember, kl. 20:30 og í Félagsheimilinu Hvammstanga, miðvikudaginn 16. desember, kl. 20:30. Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend. Enginn aðgangseyrir. 

Í fréttatilkynningu kemur fram að stjórnandi kórsins er Daníel Geir Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvarar eru Friðrik Már Sigurðsson og Guðmundur Þorbergsson. Kynnir er Daníel Geir Sigurðsson. Hugvekju flytur Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir.

Á tónleikunum á Hvammstanga munu einnig syngja nemendur 3. og 4. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra við undirleik Aðalsteins Grétars Guðmundssonar.

Heitt súkkulaði og smákökur að loknum tónleikum.

Tónleikarnir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga og styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir