Hreyfivika í Húnaþingi vestra

Sumaraukinn í september er tilvalinn til útivistar og gönguferða, ekki síst í yfirstandandi hreyfiviku. Mynd: KSE.
Sumaraukinn í september er tilvalinn til útivistar og gönguferða, ekki síst í yfirstandandi hreyfiviku. Mynd: KSE.

Húnaþing vestra tekur nú í fyrsta sinn þátt í Hreyfiviku (Move Week) sem fer fram um alla Evrópu dagana 21.-27. september. Tilgangurinn er að hvetja til virkrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum. Boðið verrður upp á fjölbreytta hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Það er von sveitarfélagsins að íbúar þess kynni sér það sem í boði er í Hreyfivikunni, taki þátt í einhverjum viðburðanna og skilji jafnvel bílinn eftir heima og gangi eða hjóli í vinnuna.

Dagskrá Hreyfiviku 21.-27. september er eftirfarandi:

Viðburðir

Lýsing

Tímasetning

Íþróttamiðstöð

Frítt í íþróttasal, þreksal og sundlaug.

Alla vikuna.

Morguntímar

Boðið verður upp á aukinn opnunartíma í íþróttahúsið, þreksal og sundlaug.

Alla virka morgna kl. 06:00.

Badminton

Opnir tímar. Allir byrjendur velkomnir. Reyndir iðkendur verða með tilsögn. Spaðar og flugur á staðnum.

Mánu- og miðvikudag kl. 19:30

Fótbolti/Bumbubolti

Opnir tímar. Hér gefst tækifæri til að spila fótbolta með reyndum, úthaldsömum og snöggum knattspyrnuköppum. 

Þriðjudag kl. 19:30 og fimmtudag kl. 20:00.

Blak

Opnir tímar, allir velkomnir. Karlar sérstaklega hvattir til að koma og prófa.

Þriðju- og fimmtudag kl. 18:30.

Körfubolti

Frítt inn.

Þriðju- og fimmtudag kl. 20:00.

Kraftlyftingar

Aðalsteinn býður áhugasömum tilsögn í kraftlyftingum í þrektækjasalnum.

Mánu- og miðvikudag kl. 16:30-18:00. 

Hádegispúl

Stöðvaþjálfun með Sveinbjörgu í íþróttahúsinu. Allir velkomnir.

Föstudag kl. 12:10-12:50.

Jóga

Pálína jógakennari með frábæra kvöldstund í kundalini jóga í íþróttahúsinu.

Föstudag kl. 20:00. 

Boccia

Stórskemmtileg íþróttagrein sem hentar jafnt ungum sem öldnum.

Laugardag kl. 10:00.

Sund eldri borgara

Vatnsleikfimi fyrir eldri borgara með Stellu.

Fimmtudag kl. 13:00.

Blóðþrýstingsmæling

Starfsfólk heilsugæslunnar verður með blóðþrýstingsmælingu í íþróttamiðstöðinni öllum að kostnaðarlausu.

Þriðju- og miðvikudag kl. 14:00-15:00.

Foreldraæfing

Foreldrum/Forráðamönnum er sérstaklega boðið að koma og kíkja á æfingar hjá Umf. Kormáki.

Mánu-, þriðju- og miðvikudag.

Hestafimleikar

Kathrin og Irena bjóða foreldrum/forráðamönnum að koma og skemmta sér með krökkunum.

Þriðjudag kl. 16:30 og fimmtudag kl. 15:00. 

Fjallganga

Allir velkomnir að labba upp að Snældukletti með Guðmundi og Tönju. Lagt af stað frá íþróttamiðstöðinni.

Laugardagur kl. 11:00.

Leikskólinn Ásgarður

Skipulögð hreyfistund með fjölbreyttri hreyfingu í íþróttahúsinu.

Mánu- og fimmtudagur kl. 09:30-10:10.

Leikskólinn Ásgarður

Nýr leikur verður kenndur á leikskólalóð.

Þriðjudag.

Leikskólinn Ásgarður

Vettvangsferð upp í Hvamm.

Miðvikudag.

Kaupfélagið

Kaupfélagið býður 10% afslátt af öllum heilsuvörum.

Mánudag - laugardag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir