Haldið upp á Alþjóðlega ferðamáladaginn á Hólum

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hélt upp á Alþjóðlega ferðamáladaginn þann 29. september með morgunverðarfundi á veitingastaðnum Undir Byrðunni. Ljósm./Guðmundur B. Eyþórsson.
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hélt upp á Alþjóðlega ferðamáladaginn þann 29. september með morgunverðarfundi á veitingastaðnum Undir Byrðunni. Ljósm./Guðmundur B. Eyþórsson.

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hélt upp á Alþjóðlega ferðamáladaginn sl. þriðjudag með morgunverðarfundi á veitingastaðnum Undir Byrðunni á Hólum. Á vef Hólaskóla segir að ferðamál á Íslandi hafi verið þar til umræðu og sett í stærra samhengi með því að tengja markmið Alþjóðaferðamálastofnunarinnar og ferðamál í okkar nánasta umhverfi.

„​Staðarnemendur í námskeiðinu Ferðamál notuðu þetta tækifæri til að skoða stefnumótun í ferðamálum á heims- og heimavísu og bera saman markmið UNWTO og ferðaþjónustunnar í Skagafirði og skiluðu því verkefni með því að undirbúa þennan fund,“ segir á síðunni.

Auk nemenda og kennara mættu nokkrir íbúar á Hólum og starfshópur Sveitarfélagsins Skagafjarðar um ferðamál nýtti tækifærið til að taka þátt í umræðunni.

„Kunnum við þátttakendum bestu þakkir fyrir að gefa sér tíma til að hitta nemendur og skiptast á skoðunum við þá. Einnig Ferðaþjónustunni á Hólum fyrir hollan morgunmat - sem var táknrænt fyrir það þema sem fékk einna mesta umfjöllun á fundinum - mat sem tækifæri í þróun ferðaþjónustu.“

Fleiri myndir frá fundinum fá skoða á vef Háskólans á Hólum. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir