Frábær aðsókn á Fullkomið brúðkaup
Aðsókn hefur verið frábær á uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks á Fullkomnu brúðkaupi eftir Robin Howdon í leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar. Uppselt hefur verið á fjórar sýningar af tíu hingað til og góður rómur gerður að sýningunni. Ýmsan skemmtilegan fróðleik um sýninguna og þátttakendur má lesa á heimasíðu leikfélagsins.
Nú eru þrjár sýningar eftir og því um að gera að tryggja sér miða á einhverja þeirra. Sýningarnar verða sem hér segir:
11. sýning miðvikudaginn 11. maí kl. 20
12. sýning laugardaginn 14. maí kl. 15
Lokasýning sunnudaginn 15. maí kl. 20
Almennt miðaverð er 2800 krónur en fyrir hópa, eldri borgara og öryrkja er miðaverðið 2300 krónur. Miðapantanir eru í síma 8499434.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.