Hanna og framleiða stóla úr flotholtum - fimmti þáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla
Í fimmta þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla er rætt við Hólmfríði Ósmann Jónsdóttur arkitekt og Einar Daníel Karlsson smið. Þau eru að fara af stað með framleiðslu á stólalínu sem þau kalla Floating Fender Chair og þau hanna og smíða í samstarfi við Hrefnu Björg Þorsteinsdóttur arkitekt og Ágúst Þorbjörnsson málmsmið. Verkefnið Floating Fender Chair er sprottið úr samstarfi við veitingastaðinn Sjávarborg á Hvammstanga.
Í þættinum segja þau frá því hvernig hugmyndin að stólunum kviknaði þegar þau unnu saman að innréttingu veitingastaðarins en líkt og innviðir Sjávarborgar sækja stólarnir innblástur til hafsins og umhverfisins þar í kring. Þau deila með áhorfendum því langa og stranga ferli sem felst í að hanna og þróa nýja vöru, fá hönnunarvernd og fleira áður en hægt er að koma vörunni á markað.
Sem fyrr segir er þetta fimmti þátturinn af sex, þar sem fyrirtæki heimsótt og farið er yfir starfsemina, allt frá hugmynd til viðskiptatækifæris. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf.
Fyrirmyndarfrumkvöðlar er samstarfsverkefni Feykis og Skottu kvikmyndafjelags. Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttastjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson.
Í fyrsta þætti voru Ásdís Sigurjónsdóttir, Einar E. Einarsson og Sólborg Una Pálsdóttir á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Þau standa að framleiðslu smyrsla og leðurfeiti úr minkafitu undir vörumerkinu Gandur.
Í öðrum þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla fengum við að kynnast Lilju Gunnlaugsdóttur, sem rekur handverksfyrirtækið Skrautmen, og líta inn í vinnustofu hennar að Áshildarholti í Skagafirði.
Í þriðja þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla heimsóttum við Jóhannes Gunnar Þorsteinsson tölvuleikja- og hljóðhönnuð og sambýliskonu hans, Arnfríði Hönnu Hreinsdóttur, á Kollafossi í Miðfirði. Í Kollafossi reka þau leikjamiðstöð, þar sem þau bjóða öðrum tölvuleikjahönnuðum í sveitasæluna, svo þeir geti einbeitt sér að vinnu sinni í friði og ró.
Í fjórða þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla heimsóttum við fyrirtækið Iceprotein í Verinu á Sauðárkróki. Rætt var við Hólmfríði Sveinsdóttur framkvæmdastjóra og fylgst með vinnsluferlinu þegar þorskprótein eru unnin úr afskurði frá Fisk Seafood.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.