Afhjúpun minningarstöpuls á Blönduósi

Sigurður Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal.
Sigurður Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal.

Á morgun, sunnudaginn 27. september, verður afhjúpaður stöpull á Blönduósi til minningar um Sigurð Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal og bókmenntaafrek hans, en hann íslenskaði á unga aldri bókina „Kúgun kvenna“ eftir enska heimspekinginn John Stuart Mill. Athöfnin verður kl. 13:00 og mun taka um 45 mínútur.

Eftirtaldir muna flytja stutt ávörp:

  • Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar,
  • Þór Jakobsson veðurfræðingur, verkefnisstjóri,
  • Kristín Margrét Sigurðardóttir fyrir hönd fjölskyldunnar,
  • fulltrúi stjórnar Kvenréttindafélags Íslands og
  • Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafnsins og formaður Alþingisnefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
  • Að lokum munu ungmenni á Blönduósi kippa í spottann.

Stöpullin verður reistur á mótum Húnabrautar og Árbrautar (handan við Árbraut 1 og Húnabraut 9.

Verkefnið er unnið að frumkvæði ættmenna Sigurðar Jónassonar og kostað af þeim, Blönduósbæ og frjálsum framlögum áhugafólks. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra veitti rausnarlegan styrk.  Kvenréttindafélag Íslands hefur stutt verkefnið með ráðum og dáð og einnig hefur Kvenfélagasamband Íslands, Þekkingarsetrið á Blönduósi o.fl. veitt lið hugmyndinni um stöpulinn. Þess má geta að svo vill til að minningarstöpullinn verður afhjúpaður á fæðingardegi frumkvöðuls kvenréttinda á Íslandi, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, 27. september.

Málmsteypan Hella í Hafnarfirði og Steinsmiðja S. Helgasonar unnu verkið.

Allir eru velkomnir að vera við afhjúpunina.

Heimild: Húni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir