Stórskemmtilegt golfeinvígi hjá Golfklúbbi Sauðárkróks

Einvígi ( shoot-out ) barna og unglinga hjá Golfklúbbi Sauðárkróks var haldið á Hlíðarendavelli fimmtudaginn 26. júlí. Alls voru 12 þátttakendur í mótinu sem fór fram í ágætis veðri. Fyrirkomulagið er þannig að allir spila fyrstu brautina og sá sem slær flest höggin á henni dettur út en hinir halda áfram á næstu braut og síðan koll af kolli þar til einn stendur eftir.

Verði tveir eða fleiri jafnir á hverri holu þá verða þeir að heyja einvígi sem getur verið langt pútt, vipp af löngu eða stuttu færi, högg úr sandglompu o.s.frv.

Þau sem tóku þátt voru þau Hákon Ingi Rafnsson, Matthildur Kemp Guðnadóttir, Aldís Ósk Unnarsdóttir, Jónas Már Kristjánsson, Elvar Ingi Hjartarson, Pálmi Þórsson, Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson, Maríanna Ulriksen, Jóhann Ulriksen, Arnar Ólafsson og Anna Karen Hjartardóttir. Þetta er í fyrsta skiptið sem þetta mót er haldið en stefnt er að því að verði árlegur viðburður hjá klúbbnum. Er skemmst frá því að segja að mótið var stórskemmtilegt og á síðustu holunni voru það þau Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir og Elvar Ingi Hjartarson sem stóðu eftir. Bæði áttu þau ágæt upphafshögg og Elvar sló fyrstur, var um 10 metrum of stuttur frá flöt en Hekla sló frábært högg af um 150 metra færi og setti um 1,5 metra frá stöng og tryggði sér par á holunni og þar með sigurinn á mótinu.
/HG

Meðfylgjandi eru myndir sem Hjörtur Geirmundsson tók á mótinu.

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir