Síðasti dagur Listahátíðar barnanna - myndir
feykir.is
Skagafjörður, Ljósmyndavefur, Listir og menning
04.05.2012
kl. 11.02
Af tilefni Sæluviku heldur Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki Listahátíð barnanna dagana 2. – 4. maí. Síðastliðna daga hafa börn og starfsfólk skólans opnað dyrnar fyrir bæjarbúum og þeim gefinn kostur að heimsækja börnin og skoða þau fjölmörgu glæsilegu listaverk sem þau hafa skapað í leikskólanum yfir veturinn.
Nú fer hver að vera síðastur að njóta listaverka barnanna því í dag er síðasti dagur listahátíðarinnar. Á eldra stigi verður sýningin opin frá kl. 13:00 - 16:30 en á yngra stigi verður opið frá kl. 14:00-16:00.
Blaðamaður Feykis þræddi húsakynni leikskólans í morgun og tók nokkrar myndir af listaverkunum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.