Flottur sigur Tindastólsstúlkna á ÍR

Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli vann góðan sigur í 1. deildinni í kvöld þegar þær fengu lið ÍR í heimsókn á Sauðárkróksvöll. Leikið var við ágætar aðstæður þó áhorfendum hafi örugglega verið orðið pínu kalt þegar líða tók á leikinn. Lokatölur 1-0 fyrir Tindastól.

Svava Rún Ingimarsdóttir skoraði sigurmark Tindastóls á 69. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu utan af kanti en boltinn sveif í fallegum boga yfir markvörð ÍR og í bláhornið. Stuttu áður fengu ÍR-ingar sitt besta færi í leiknum en boltinn hafnaði í þverslánni eftir skot úr aukaspyrnu.

Leikmenn Tindastóls börðust eins og ljón í leiknum og gaf vörnin fá færi. Sama má segja um ÍR-liðið en mark Svövu gerði gæfumuninn í kvöld og 3 sæt stig komin í pott Tindastóls. Ljósmyndari Feykis var á vellinum og hér að neðan er að finna nokkrar myndir frá leiknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir