Árskóla slitið

Föstudagskvöldið 30. maí var Árskóla slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að viðstöddu fjölmenni. Það voru nemendur í 9. og 10. bekk sem kvöddu skólann sinn, þeir yngri fram á haust en hinir eldri fyrir fullt og allt. Yngri bekkir skólans kvöddu hann fyrr um daginn.

Óskar Björnsson skólastjóri sagði í ræðu sinni að búið væri að teikna og hanna viðbyggingu við skólann og loksins sæist fyrir endann á húsnæðisvandræðum þeim sem oft væri búið að tala um í gegnum árin en framtíðarsýnin er að allt skólahald væri undir sama þaki en það fer fram í tveimur skólahúsum auk tveggja smáhúsa á lóð skólans á Freyjugötu.

Margrét Pétursdóttir

Verðlaun voru veitt fyrir góðan árangur í hinum ýmsu greinum og góðar kveðjur og heilræði fengu útskriftarnemar frá Óskari sem sagði að einkennisorð skólans „lifa, leika, læra“ ættu að fylgja þeim gegnum lífið því það ætti að vera skemmtilegt og lærdómsríkt. Einnig kom fram að skólinn ætti því láni að fagna að það heldur vel á starfsfólki sínu en engar breytingar eru á starfsliði skólans fyrir utan eina unga konu úr Lýtó, eins og Óskar orðaði það, en Margrét Pétursdóttir hættir nú vegna aldurs. Var henni þökkuð vel unnin störf og verður hennar sárt saknað af samstarfsfólki og ekki síst nemendum en hún hefur starfað sem gangavörður í um áratug.

Fyrrverandi nemendur ávörpuðu gesti og voru þar á ferð tuttugu- og þjátíu ára útskriftarnemar. Minntust þeir verunnar í skólanum á skemmtilegan hátt og rifjuðu upp nokkur atvik er kitluðu hláturtaugar áheyrenda. Færðu þeir skólanum góðar gjafir sem koma ætti skólastarfinu vel.

Formaður nemendaráðs, Snæbjört Pálsdóttir, ávarpaði gesti fyrir hönd útskriftanema og gerði grein fyrir félagsstarfi vetrarins og rifjaði upp nokkur „ljóskumóment“ úr skólaferðalaginu til Danmerkur og kvaddi kennara og starfsfólk skólans.

Big band Árskóla

Nemendur skemmtu gestum sínum með söng og hljóðfæraleik og uppskáru mikið lófaklapp.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir frá skólaslitunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir