Skotfélagið vill tryggja sér aðstöðu til frambúðar

Byggðaráð Blönduósbæjar hefur samþykkt erindi stjórnar Skotfélagsins Markviss um að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins í þá veru að gert verði ráð fyrir æfinga- og keppnissvæði skotfélagsins á núverandi stað, sem er austan flugvallarins.

Erindi skotfélagsins barst byggðaráði 2. júní síðastliðinn en þá var ákveðið að fela byggingarfulltrúa að meta hvort sú breyting á skipulagi sem óskað var eftir myndi standast lög og reglur og hvað slíkt myndi kosta. Í minnisblaði byggingarfulltrúa sem lagt var fram á fundi byggðaráðs 15. júlí síðastliðinn kemur fram að ekki verði sé að neitt banni þessa staðsetningu og að kostnaður við aðalskipulags- og deiliskipulagsbreytingu sé áætlaður allt að 1,6 milljón króna auk virðisaukaskatts.

Vill skotfélagið tryggja að aðstaða félagsins verði þarna til frambúðar og að hægt verði að ráðast í gerð riffilbrautar. Byggðaráðið samþykkti erindi Skotfélagsins og fól byggingarfulltrúa að vinna málið frekar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir