Síðasti leikur tímabilsins hefst kl. 14 - frítt á völlinn
Síðasti fótboltaleikur ársins hjá meistaraflokki karla hefst kl. 14 í dag en þá tekur Tindastóll á móti Aftureldingu á Sauðárkróksvelli. Er þetta klárlega mikilvægasti leikur liðsins í langan tíma, en með hagstæðum úrslitum ná Stólarnir að halda sér í 2. deildinni. Liðið er nú í 10. sæti með 22 stig.
Frítt verður á völlinn og fá allir áhorfendur happdrættismiða og geta unnið 16“ pizzu frá Hard Wok. Leikmenn munu leiða unga knattspyrnuiðkendur inn á völlinn. Í hálfleik munu nokkrir áhorfendur reyna að hitta bolta í þverslá og inna til verðlauna. Silfurlið þriðja flokks kvenna mætir á völlinn.
Staðan fyrir síðustu umferð er eftirfarandi:
9. sæti Njarðvík 23 stig -15
10. sæti Tindastóll 22 stig – 15
11. sæti Ægir 21 stig – 12
12. sæti Dalvík/Reynir 9 stig – 47
Leikir síðustu umferðar:
Tindastóll - Afturelding
Ægir - Njarðvík
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.