Samkomutjöldin risin á Unglingalandsmótssvæðinu

Frá uppsetningunni í gær. Mynd: UMFÍ
Frá uppsetningunni í gær. Mynd: UMFÍ

Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit og ungmennafélagar frá Neista á Hofsósi og Ungmennasambandi Skagafjarðar reistu á Sauðárkróki í gær tvö stærstu tjöldin sem einkenna Unglingalandsmót UMFÍ.

Þetta eru skemmti- og samkomutjöld þar sem tónleikar fara fram á hverju kvöldi á meðan mótinu stendur um næstu verslunarmannahelgi.

Tjöldin eru stór og þung og eru geymd í gámunum sem fluttir voru á mótasvæði Unglingalandsmótsins í gær. Lítinn lyftara þurfti til að flytja tjöldin úr gámnum og fjöldi fólks kom að því að reisa tjöldin og allar súlurnar sem halda þeim upp.

Með félögunum unnu þau Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, og Pálína Ósk Hraundal, verkefnastjóri mótsins, og segja þau uppsetninguna hafa gengið vel.

Á meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum öll kvöldin á meðan mótinu stendur eru Emmsjé Gauti, Magni, sem kemur brakandi ferskur af Bræðslunni, Guðrún Árný, Danssveit Dósa, DJ Heisi, Jón Arnór og Baldur, Herra Hnetusmjör og Valdís ásamt öðrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir