Omoul Sarr til liðs við kvennalið Tindastóls í körfunni

Mynd David Már.
Mynd David Már.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við hina reynslumiklu Omoul Sarr um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili í Bónusdeildinni segir í tilkynningu á Facebook-síðu Kkd. Tindastóls.

“Sarr hefur gríðarlega reynslu af því að spila í efstu deildum í Evrópu og um allan heim. Hún er góð fyrirmynd sem íþróttamaður og hugsar vel um líkamann sem gerir henni kleift að vera enn að spila keppnisbolta. Hún er leiðtogi innan vallar sem utan. Ég er mjög ánægður að hafa fengið hana í Tindastól. Hún er sterkur leikmaður sem stígur upp í stórleikjum og þegar liðið þarf mest á henni að halda.” segir Israel Martin þjálfari liðsins.

Sarr segist ánægð og spennt fyrir tækifærinu til að spila á Íslandi. “Ég hlakka mikið til að koma á Sauðárkrók, kynnast liðsfélögum mínum, klúbbnum og bænum. Ég hef talað við Martin þjálfara og mér líst mjög vel á markmið hans og allra sem koma að körfuboltanum. Ég hef aldrei komið til Íslands en ég veit að það er fallegt og kalt svo ég hlakka mikið til að takast á við nýjar áskoranir og læra eitthvað nýtt”

Dagur Þór, formaður segir Tindastól vera stórveldi í íslenskum körfubolta með mikinn metnað fyrir því að styrkja kvennaliðið til framtíðar. “Stelpurnar okkar þurfa öflugar fyrirmyndir og Sarr hefur mikla þekkingu og reynslu sem hún getur miðlað til stelpnanna okkar. Það er því einkar ánægjulegt að fá hana til klúbbsins.”

Við bjóðum Omoul “Toch” Sarr hjartanlega velkomna á Krókinn og hlökkum til að sjá hana í Síkinu næsta vetur!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir