Meistaraflokkur kvenna á heimaleik í kvöld kl. 18

Það er heimaleikur í kvöld, miðvikudag 24. júlí, kl. 18:00 hjá meistaraflokki kvenna gegn Val í Bestu deildinni. Eins og staðan er í deildinni fyrir leikinn þá sitja Valsstúlkur í 2. sæti en Stólastelpur í 8. sæti. Það er því mjög mikilvægt að úrslit leiksins verði þeim í hag og þurfa stelpurnar á stuðning að halda á leiknum. Það er því ekkert annað í stöðunni en að mæta á leikinn og hvetja stelpurnar áfram. koma svo allir á völlinn!

Sjoppan verður að sjálfsögðu á sínum stað og boðið verður upp á grillaða hamborgara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir