Jón Oddur vann efstu deildina í fimmtu umferðinni
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
27.11.2023
kl. 15.15
Fimmta umferð í Kaffi Króks deildinni hjá Pílukastfélagi Skagafjarðar fór fram í síðustu viku og mættu 14 einstaklingar til leiks. Spilað var í þremur deildum að þessu sinni og var mótið spennandi að venju, en á endanum hafði Jón Oddur Hjálmtýsson sigur í fyrstu deildinni.
Í annarri deildinni vann Björn Ingi Björnsson og í þeirri þriðju var Heiðar Örn Stefánsson sigurvegari. Pílukastfélag Skagafjarðar þakkar öllum fyrir komuna og minnir á lokakvöldið sem verður haldið 5. desember nk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.