Húnavallaskóli 100 þúsund krónum ríkari
Húnavallaskóli er á meðal þriggja grunnskóla sem dregnir voru út í Norræna skólahlaupinu 2016. Hver þessara skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, sem selur vörur til íþróttaiðkunar og munu vörurnar nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.
Norræna skólahlaupið er haldið í 33. sinn í ár en með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur gátu nú eins og áður valið um þrjár vegalengdir þ.e. 2,5 km, 5 km og 10 km. Hver þátttakandi og hver skóli fékk viðurkenningu þar sem tilgreindur var árangur í hlaupinu. Mjólkursamsalan hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi og samstarfsaðili eins og áður er Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.
Í ár eins og í fyrra var ákveðið að draga út þrjá skóla sem tóku þátt og luku hlaupinu fyrir 1. október ásamt því að skila inn upplýsingum til ÍSÍ. Þátttaka í hlaupinu hefur verið mjög góð en 50 skólar hafa nú þegar skilað inn niðurstöðum um hlaupið og voru með í útdrættinum. Hinir skólarnir sem dregnir voru út eru Áslandsskóli í Hafnarfirði og Ölduselsskóli í Reykjavík. Hægt er að sjá upptöku af útdrættinum á Facebook-síðu ÍSÍ.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.