Fjórar Feykiflottar semja við Tindastól

Brynja, Klara, Emma og Rannveig. Mynd: Davíð Már.
Brynja, Klara, Emma og Rannveig. Mynd: Davíð Már.
Á Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að félagið hafi gengið frá samningum við þær Brynju Líf, Emmu Katrínu, Klöru Sólveigu og Rannveigu um að spila fyrir Tindastól í Subway deildinni á komandi tímabili. Israel Martin þjálfari segir það góðar fréttir fyrir félagið í heild „Það er mjög mikilvægt að tryggja samfellu í þessu uppbyggingarverkefni sem liðið er í, halda í það góða sem byggt hefur verið upp og horfa til framtíðar“
 
Körfuknattleiksdeildin tekur undir þau orð Israels og hlakkar til að fylgjast með stelpunum í baráttunni í Subway-deildinni næsta vetur!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir