Benedikt Guðmundsson tekur við Stólunum og hlakkar til

Benni Guðmunds og Dalli Baldvins handsala samninginn kampakátir. MYND: FEYKIR/GG
Benni Guðmunds og Dalli Baldvins handsala samninginn kampakátir. MYND: FEYKIR/GG

Gengið hefur verið frá ráðningu Benedikts Rúnars Guðmundssonar í starf þjálfara meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla. Tekur hann við keflinu af þeim Svavari Atla Birgissyni og Helga Frey Margeirssyni, sem tóku tímabundið við þjálfun liðsins þegar Pavel Ermolinskij forfallaðist vegna veikinda í mars sl..

Benedikt á að baki langan og farsælan þjálfaraferil. Hann hefur m.a. unnið með meistaraflokkum Fjölnis, Grindavíkur, KR, Þórs Akureyri, Þórs Þorlákshöfn og nú síðast með liði Njarðvíkur. Á ferlinum hefur hann unnið marga Íslands- og bikarmeistaratitla bæði með karla- og kvennaliðum. Benedikt hefur jafnframt þjálfað fjölmarga yngri flokka og er um þessar mundir þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta.

Dagur Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls: Það er mikið fagnaðarefni að fá Benedikt til starfa. Hann hefur margsannað hæfni sína á löngum þjálfaraferli og við erum ekki í vafa um að sú langa reynsla sem hann hefur í farteskinu muni nýtast okkur vel. Tindastóll hefur mikinn metnað til þess að vera í allra fremstu röð og Benedikt verður drjúgur liðsauki í þeim efnum.

Benedikt Guðmundsson: Ég er ofboðslega spenntur fyrir þessu verkefni og hlakka til að vinna með metnaðarfullri stjórn, sterkum leikmönnum og stuðningsfólki sem hefur tekið allt sitt framlag á annað level hér á landi. Ástríðan sem heimamenn hafa fyrir körfubolta er sú mesta á landinu og ég mun gera mitt allra besta til að móta lið sem Skagfirðingar geta verið stoltir af.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Benedikt velkominn til krefjandi starfa sinna á Sauðárkróki og þakkar um leið fráfarandi þjálfara sínum, Pavel Ermolinskij, fyrir frábært starf. Undir hans stjórn vann Tindastóll sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og er honum og fjölskyldu hans óskað velfarnaðar í nýjum viðfangsefnum þegar þau yfirgefa Sauðárkrók. Svavari Atla og Helga Frey er einnig þakkað fyrir þeirra dýrmæta framlag til meistaraflokksins síðustu vikur og mánuði.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir