Baldur og Alli enduðu í öðru sæti
Dagana 5. – 6. júní í var ekin fyrsta umferð íslandsmótsins í rallý. Það var Akstursíþróttafélag Suðurnesja sem skipulagði keppnina en fimmtán áhafnir mættu til leiks seinnipart föstudags.
Spennan var mikil strax í upphafi en margir fyrrum íslandsmeistar tóku þátt og ljóst að hart yrði barist um verðlaunasæti. Fór enda svo að einugis örfáar sekúndur skildu að fyrstu fjögur sætin þegar næturhlé var tekið á föstudagskvöldið en þá höfðu verið eknar fimm sérleiðir af alls ellefu. Ein áhöfn hafði fallið úr leik um þá kvöldið.
Spennan var gríðarleg þegar áhafnirnar fjórtán mættu á laugardagsmorguninn. Eknar voru þrjár sérleiðir um Djúpavatn, hraðinn jókst með hverri leið og viðbúið var að eitthvað yrði undan að láta. Álag var mikið, bæði á bifreiðar sem og áhafnir en systkinin Daniel og Ásta Sigurðarbörn voru fyrst í toppbaráttunni til að falla úr leik. Einnig lentu þeir Hennig Ólafsson og Árni Gunnlaugsson fljótlega í vandræðum með túrbínu í Subaru-bifreið sinni. Þeim tókst þó að leysa vandann en töfðust all verulega sem gerði vonir þeirra um veðlaunasæti að engu.
Á síðustu Djúpavatnsleiðinni náðu Valdimar J. Sveinsson og Skafti Skúlason að slíta sig frá Baldri Haraldssyni og Aðalsteini Símonarsyni og var þá orðið nokkuð ljóst hverjir myndu skipa fyrsta og annað sætið. Um þriðja sætið var hörð barátta milli Eyjólfs Melsteð og Heimis Snæs Jónssonar annars vegar og sunnlendinganna Þórs Lína Sævarssonar og Sigurjóns Þórs Þrastarsonar hinsvegar en þeir Þór Líni og Sigurjón féllu úr leið á næst síðustu sérleið.
Það voru 10 áhafnir sem luku keppni en sigurvegarar urðu þeir Valdimar Jón Sveinsson og Skafti Skúlason á Mitubishi Evo 7 en í öðru sæti urðu þeir Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson á Subaru Impreza Sti, einungis sextán sekúndum á eftir. Í þriðja sæti urðu svo þeir Eyjólfur Melsteð og Heimir Snær Jónsson á Cherokee en þeir sigruðu einnig í jeppaflokki.
Næsta umferð íslandsmótsins er áætluð í byrjun júlí. Er það Bifreiðaklúbbur Reykjavíkur sem stendur að henni en áætlað er að aka um Snæfellsnes ef veður og færð leyfa.
Þrátt fyrir að sigur sé ávallt takmark við upphaf keppni eru þeir TímON félagarnir Baldur og Aðalsteinn sáttir með sína frammistöðu en þetta er fjórða sumarið sem þeir aka saman. Tókst þeim að bæta aksturstíma sína á flestum sérleiðun samhliða því að aka af skynsemi og án hættu á að skemma bíl sinn. Þar sem þetta er aðeins fyrsta umferð af fimm er mjög mikilvægt að koma á heilum bíl í endamark, einnig hafa að leiðarljósi að úrslit íslandsmótsins ráðast ekki í fyrstu keppni. Nóg er eftir og verður spennandi að fylgjast með þeim félögum í sumar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.