Anna Karen og Jóhann Örn klúbbmeistarar GSS 2024
Meistaramót GSS fór fram dagana 1. - 6. júlí á Hlíðarendavelli í frekar hvössu og köldu veðri. Rúmlega 80 þátttakendur tóku þátt í sjö mismunandi flokkum. Keppt var í meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og kvenna, 2. flokki karla, háforgjafarflokki, öldungaflokki, 15 ára og yngri í bæði stelpu og drengjaflokki og að lokum 12 ára og yngri. Í fyrra voru klúbbmeistarar systkinin Arnar Geir Hjartarson og Anna Karen Hjartardóttir en þar sem Arnar tók ekki þátt í ár var ljóst að nýr klúbbmeistari yrði krýndur í karlaflokki þetta árið.
Krakkarnir í barna- og unglingaflokkunum spiluðu á mánudag og þriðjudag og tóku alls 28 krakkar þátt í ár sem er frábært. Þá voru 54 fullorðnir þátttakendur sem léku miðvikudag til laugardags. Fjölmennast var í háforgjafaflokki en þar léku 14 kylfingar sem margir hverjir eru nýbúnir að ljúka nýliðanámskeiði. Keppnin var æsispennandi og voru úrslit í mörgum flokkum ekki að ráðast fyrr en á síðustu holunum á lokadegi. Í meistaraflokki karla enduðu jafnir í 1. sæti Hákon Ingi Rafnsson og Jóhann Örn Bjarkason sem báðir léku á 331 höggi. Einnig voru þeir jafnir í 3. sæti Ingvi Þór Óskarsson og Hlynur Freyr Einarsson sem léku á 336 höggum. Það þurfti því að leika tvo bráðabana til að ná fram lokaúrslitum í öll verðlaunasæti meistaraflokks karla. Það endaði svo að Jóhann Örn Bjarkason sigraði meistaraflokkinn að loknum bráðabana og er hann klúbbmeistari GSS í sjöunda sinn. Áður hefur Jóhann Örn orðið klúbbmeistari árin 2002, 2003, 2004, 2005, 2010 og 2011. Anna Karen Hjartardóttir lék á 324 höggum og sigraði meistaraflokk kvenna örugglega. Anna Karen er klúbbmeistari GSS í fimmta sinn en hún varð fyrst klúbbmeistari árið 2020 og hefur náð að verja titilinn síðan. Lokahóf fullorðinsflokka fór fram á Kaffi Krók á laugardagskvöldið þar sem kylfingar áttu saman góða kvöldstund og verðlaun voru afhent.
Úrslit meistaramóts GSS 2024 í öllum flokkum voru eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla - 72 holu höggleikur án forgjafar
- Jóhann Örn Bjarkason, 331 högg (að loknum bráðabana)
- Hákon Ingi Rafnsson, 331 högg
- Ingvi Þór Óskarsson, 336 högg (að loknum bráðabana)
Meistaraflokkur kvenna - 72 holu höggleikur án forgjafar
- Anna Karen Hjartardóttir, 324 högg
- Una Karen Guðmundsdóttir, 336 högg
- Hildur Heba Einarsdóttir, 346 högg
Fyrsti flokkur karla - 72 holu höggleikur án forgjafar
- Þórður Ingi Pálmason, 353 högg
- Guðmundur Ragnarsson, 356 högg
- Hjörtur S. Geirmundsson, 363 högg
Fyrsti flokkur kvenna - 72 holu höggleikur án forgjafar
- Sylvía Dögg Þórðardóttir, 392 högg
- Gígja Rós Bjarnadóttir, 393 högg
- Margrét Helga Hallsdóttir, 412 högg
Annar flokkur karla - 72 holu höggleikur án forgjafar
- Kristinn Brynjólfsson, 403 högg
- Pétur Rúnar Birgisson, 502 högg
Öldungaflokkur - 27 holu höggleikur með forgjöf
- Guðrún Björg Guðmundsdóttir, 118 högg nettó
- Ágústa Sigrún Jónsdóttir, 124 högg nettó
- Guðmundur Helgi Kristjánsson, 126 högg nettó
Háforgjafaflokkur - 27 holu punktakeppni með forgjöf
- Hrefna Gerður Björnsdóttir, 66 punktar
- Unnar Bjarki Egilsson, 64 punktar
- Hera Birgisdóttir, 61 punktur
15 ára og yngri drengir - 18 holu höggleikur á rauðum teigum
- Ólafur Bjarni Þórðarson, 93 högg
- Brynjar Morgan Brynjarsson, 94 högg
- Gunnar Atli Þórðarson, 99 högg
15 ára og yngri stelpur - 18 holu höggleikur á rauðum teigum
- Nína Júlía Þórðardóttir, 112 högg
- Nína Morgan Brynjarsdóttir, 114 högg
- Elín Björk Friðþjófsdóttir, 145 högg
12 ára og yngri (strákar og stelpur) - 9 holu höggleikur á gull teigum
- Daníel Smári Kristjánsson, 105 högg
- Arnór Tryggvi Friðriksson, 107 högg
- Aron Sölvi Arnarsson, 124 högg
Fréttatilkynning/Hanna Dóra/SG
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.