Vörusvik og sýndarmennska í boði stjórnvalda
Landsvirkjun hefur nú ákveðið og skráð að öll raforka sem fyrirtækið selur hér á landi sé nú framleidd með kolum, olíu eða kjarnorku. Ef smásalar, sem selja rafmagn til almennings, vilja grænt rafmagn þurfa þeir að borga fyrir vottun eða bjóða notendum sínum að gera það. Notandi sem kaupir grænt rafmagn, framleitt á Íslandi, þarf því samkvæmt þessu að greiða sérstaklega fyrir það. Samkvæmt fréttum er hér um 15% hækkun á grænni raforku að ræða. Orku sem er og hefur alltaf verið GRÆN!
Allir vita að Ísland framleiðir enga raforku með kolum, olíu eða kjarnorku. Ísland framleiddi 19,1 tWh af grænni raforku 2020; vatnsorku (69%) og jarðhita (31%).
Afar mikilvægt er að þekkja uppruna þeirra vara sem við kaupum. Skiptir þá engu hvort varan er fullkomlega skiptanleg eins og raforkan eða ekki. Það væru t.d. fullkomin vörusvik að selja upprunaábyrgð á íslenskum þorski og setja hann á þorsk annars lands. Það sama gildir um raforku frá Íslandi. Græna orkan okkar hættir ekki að vera frá Íslandi við sölu á upprunaábyrgð. Það er ekki flóknara en það. Ísland er ekki tengt raforkukerfi Evrópu og engin kjarnorku- og kolaframleidd raforka er til sölu í íslenska dreifikerfinu. Óskhyggja Landsvirkjunar um annað breytir engu um þá staðreynd.
Það er grátlegt að horfa upp á það hvernig hin hreina og græna ásýnd okkar er máluð í kolsvörtum mengandi litum.
Sala upprunaábyrgða til ESB sýnir á pappírnum að 87% raforku á Íslandi sé framleidd með 57% jarðefnaeldsneytis og 30% kjarnorku. Vægast sagt ömurlegt er að horfa upp á þessa fölsun á raunveruleikanum. Á pappírnum fyrir árið 2021 erum við sögð hafa losað 7,2 milljónir tonna af koldíoxíði og 20.660 tonn af geislavirkum kjarnorkuúrgangi vegna sölu upprunaábyrgða. Fyrirtæki ESB skreyta sig með hreinni raforku Íslands og kola- og kjarnorkumengunin skrifast á okkur.
Sýndarmennska ríkistjórnarinnar ríður ekki við einteyming. Ríkisstjórnin ætlar sér – sé eitthvað að marka stjórnarsáttmála hennar – að Ísland verði í forystu í orkuskiptum á alþjóðavísu. Er sú forysta fólgin í því að heimili landsins séu sögð nota raforku framleidda úr kjarnorku og kolum?
Í löggjöf ESB eru reglur sem segja til um sönnun á uppruna vöru. Ætlum við að láta bjóða okkur það að heimilin okkar séu stimpluð á alþjóðavísu sem umhverfissóðar sem kaupi raforku framleidda með kjarnorku og kolum nema við greiðum hærra verð fyrir?
Við eigum að krefjast upplýsinga um uppruna þeirrar raforku sem okkur er seld. Hvar verður sú raforka til á Íslandi sem framleidd er úr kolum eða með kjarnorku? Við viljum fá svar við því.
__________________
Eyjólfur Ármannsson
Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og formaður Orkunnar okkar.
eyjolfur.armannsson@althingi.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.