Vísnakeppni í Sæluviku
Enn er hægt að taka þátt í vísnakeppninni sem Safnahús Skagfirðinga stendur fyrir í Sæluviku. Síðusti skiladagur er á föstudaginn 24. apríl. Fyrsta vísnakeppnin var haldin árið 1976 að frumkvæði Magnúsar Bjarnasonar kennara. Safnahúsið hefur síðustu ár staðið fyrir þessari keppni og verða úrslit kynnt í Safnahúsinu 26. apríl kl. 16:00.
Að venju verða veitt vegleg verðlaun fyrir besta botn og bestu vísu um ákveðið tilefni. Þau sem hyggjast taka þátt í keppninni um bestu vísuna eru beðin um að svara spurningunni: Hver er framtíð lands og þjóðar? Þá eru gefnir þrír fyrripartar og eru veitt verðlaun fyrir besta botninn:
Ég hef engri útrás sinnt
arðinn fengið rýran.
Bankakerfið hrundi í haust
heiðri glatar þjóðin.
Nú er vetur burtu úr bæ
bráðum getur sungið lóa.
Vísur og botnar skulu merktir dulnefni, en nafn höfundar fylgi með í lokuðu bréfi. Úrlausnir þurfa að hafa borist Safnahúsi Skagfirðinga við Faxatorg, 550 Sauðárkróki í síðasta lagi föstudaginn 24. apríl. Einnig er hægt að senda úrlausnir í netfangið skjalasafn@skagafjordur.is og verður þá svo um hnúta búið að dómnefnd sjái ekki hverjir eru höfundar vísnanna. Enn sem fyrr veitir Sparisjóður Skagafjarðar verðlaun fyrir besta botn og bestu vísu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.