Vilt þú taka þátt í að efla íþróttastarf?
ÍSÍ og UMFÍ leitar að sextán hæfileikaríkum og metnaðarfullum einstaklingum með brennandi áhuga á íþróttastarfi á Íslandi til að taka þátt í að byggja upp öflugt starf íþróttahéraða á öllu landinu. Starfsmennirnir verða staðsettir á átta svæðastöðvum um allt land en tveir starfsmenn verða á hverri stöð.
Horft er til þess að starfsmennirnir sextán muni vinna saman sem einn þar sem styrkleikar og hæfileikar hvers og eins verða nýttir. Starfsfólk svæðastöðva tekur þátt í að skapa tækifæri og þróa árangursríkt íþróttaumhverfi fyrir börn - og ungmenni, fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að hámarka tækifæri barna og ungmenna til íþróttaiðkunar. Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og framsækni í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.
Markmiðið með svæðastöðvunum
- Vinna með íþróttahéruðum að eflingu íþróttastarfs um allt land.
- Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
- Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum.
- Bæta almennt umgjörð í kringum íþróttastarf.
Helstu verkefni svæðastöðva
- Samstarf, samskipti og stuðningur við íþróttahéruð og aðildarfélög.
- Samstarf og samskipti við opinbera aðila varðandi stuðning og þjónustu íþróttafélaga um allt land.
- Vinnsla verkefna sem tengjast aukinni þátttöku barna í íþróttum og farsæld.
- Verkefnisstjórnun og vinna að nýsköpunarverkefnum.
- Móta skipulag og eftirfylgni tengt fræðslumálum íþróttahéraða.
- Fræðsla og kynning til íþróttahéraða og aðildarfélaga í ýmsum málum.
- Samræming málaflokka, stjórnarhátta, verkferla, öryggis- og viðbragðsáætlana.
- Koma upp og viðhalda leiðbeiningum og viðmiðum fyrir stjórnun íþróttahéraða og stjórnendur íþróttafélaga.
- Yfirlit og eftirfylgni með lögbundnum skyldum íþróttahéraða og aðildarfélaga.
- Umsjón og þátttaka í samráði og á samræmingarfundum.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
- Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarfi við sveitarfélög er kostur.
- Styrkleiki og reynsla á eftirfarandi sviðum er kostur:
- Verkefnastjórnun
- Mótun ferla
- Fræðsla og miðlun upplýsinga
- Teymisvinna
Til viðbótar er mikilvægt að umsækjendur búi yfir frumkvæði, séu sjálfstæðir, geti unnið í teymi, miðlað upplýsingum munnlega og skriflega, unnið skipulega, haft góða samskiptahæfileika og getu til að ná árangri í mjög fjölbreyttu umhverfi.
Umsækjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Svæðastöðvarnar eru eftirfarandi og þjónusta eftirfarandi íþróttahéruð
Norðurland vestra:
- Ungmennasamband Austur Húnvetninga (USAH)
- Ungmennasamband Vestur Húnvetninga (USVH)
- Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS).
Sækja um starfið á Norðurlandi vestra.
Vesturland:
- Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH)
- Íþróttabandalag Akraness (ÍA)
- Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN)
- Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB).
Sækja um starfið á Vesturlandi.
Vestfirðir:
- Héraðssambandið Hrafna-Flóki (HHF)
- Héraðssamband Bolungarvíkur (HSB)
- Héraðssamband Strandamanna (HSS)
- Héraðssamband Vestfirðinga (HSV)
Sækja um starfið á Vestfjörðum.
Norðurland eystra:
- Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ)
- Íþróttabandalag Akureyrar (IBA)
- Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UIF)
- Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE)
Sækja um starfið á Norðurlandi eystra.
Austurland:
- Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UIA)
- Ungmennasambandið Úlfljót (USÚ)
Sækja um starfið á Austurlandi.
Suðurland:
- Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK)
- Íþróttabandalag Vestmannaeyja (IBV)
- Ungmennasamband Vestur Skaftafellssýslu (USVS)
Sækja um starfið á Suðurlandi.
Suðurnes:
- Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB)
- Íþróttabandalag Suðurnesja (ÍS)
Sækja um starfið á Suðurnesjum.
Höfuðborgarsvæðið:
- Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH)
- Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR)
- Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK)
Sækja um starfið á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is
Hanna Carla Jóhannsdóttir - hannacarla@isi.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.