Veljum Ásbjörn! Grein eftir Runólf Guðmundsson
Íslendingar standa á tímamótum í margskonar skilningi. Framundan eru tímar sem engan óraði fyrir að myndu koma. Þeir tímar kalla á fjölmargar breytingar í samfélaginu. Breytingar sem ganga í átt til aukins lýðræðis og breyttra stjórnarhátta. Þetta er öllum Íslendingum ljóst.
Okkur er hinsvegar ekki ljóst hvernig við sjáum þetta gerast. Við munum því taka fá skref í einu og fikra okkur að lausn sem mun efla og bæta afkomumöguleika þjóðarinnar. Fyrsta skrefið er augljóslega það að ganga fram með sóknarhug undir því ágæta kjörorði að sókn sé besta vörnin. Nú þegar framundan er val á þeim einstaklingum sem til forustu veljast er vert að hafa þetta í huga.
Nýtt fólk sem tekur við sætum alþingis þarf að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi. Þarf að vera með fæturnar á jörðinni og má gjarnan búa yfir þeim persónuleika að geta hlustað, lært og framkvæmt. Það er þessvegna sem ég sting nú niður penna til að hvetja sjálfstæðisfólk í Norð-vesturkjördæmi til að velja Ásbjörn Óttarsson í 1. sæti á framboðslistan okkar í komandi prófkjöri.
Með nýjan mann í forustu náum við að byggja upp sókn í stað varnar. Sjálfstæðisflokkurinn þarf á því að halda framsýnt fólk leiði baráttuna fólk sem ekki þarf að verja afglöp og þann skaða sem orðin er. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum og þarf að vera það áfram.
Það getur aðeins gerst með fólki sem sem hefur afl og dug til að ganga til þeirra verka sem framundan eru, skuldlaust við fortíðina. Ferill Ásbjörns Óttarssonar segir okkur að hann sé allra manna líklegastur til að virkja það afl sem í flokksfólki býr og leiða það til þeirrar endurreisnar sem þarf. Veljum því Ásbjörn í 1. Sæti.
Runólfur Guðmundsson Grundarfirði
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.