Vel gekk hjá golfurum

ulm 2010 golf

Keppt var í golfi á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi um verslunarmannahelgina.  7 þátttakendur fóru frá Golfklúbbi Sauðárkróks og kepptu undir merkjum Ungmennasambands Skagafjarðar - UMSS. 

64 voru skráðir til leiks í þremur flokkum 11-13 ára, 14-15 ára og 16-18 ára í stráka og stelpnaflokkum.  Keppendur frá GSS/UMSS stóðu sig með miklum sóma að venju og urðu í eftirtöldum sætum.

Í flokki 14-15 ára sigraði Arnar Geir Hjartarson, Sigríður Eygló Unnarsdóttir varð í 3.sæti eftir að hafa hafa spilað bráðabana um 2.sætið og Þröstur Kárason varð í 4.sæti. 

Í flokki 11-13 ára varð Elvar Ingi Hjartarson í 5.sæti, Jónas Már Kristjánsson varð í 6.sæti, Hlynur Freyr Einarsson varð í 9. sæti og Jóhannes Friðrik Ingimundarson varð í 16. sæti.

Ekki voru keppendur frá GSS/UMSS í flokki 16-18 ára.

Keppt var á glæsilegum velli Golfklúbbs Borgarness að Hamri og var frábært veður sem að keppendur fengu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir