Vegfarendur um Siglufjarðarveg athugið!

Vegurinn milli Siglufjarðar og Hrauna í Fljótum er talinn geta verið varhugaverður í þeim miklum rigningum sem spáð er á morgun. SKJÁSKOT AF UMFERÐIN.IS
Vegurinn milli Siglufjarðar og Hrauna í Fljótum er talinn geta verið varhugaverður í þeim miklum rigningum sem spáð er á morgun. SKJÁSKOT AF UMFERÐIN.IS

Vegagerðin beinir þeim tilmælum til vegfarenda að vera ekki á ferðinni um Siglufjarðarveg milli Siglufjarðar og Fljóta aðfararnótt föstudags 23. ágúst og frameftir degi vegna mikillar úrkomu og hættu á grjóthruni og skriðuföllum.

Bent er á hjáleiðir um Lágheiði og Öxnadalsheiði meðan þessi viðvörun er í gildi.

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra frá klukkan þrjú í nótt og til miðnættis aðfaranótt laugardags. Á vef Veðurstofunnar segir að spáð sé talsverðri eða mikilli rigningu, einkum á utanverðum Tröllaskaga, í Skagafirði og á Ströndum. Vatnsborð í ám og lækjum mun vaxa talsvert og vöð og árfarvegir geta því orðið varasöm. Einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni, ferðamenn ættu að forðast brattar fjallshlíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir