Veðurklúbburinn spáir skánandi veðri eftir hvítasunnu
Þriðjudaginn 3. maí 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. „Fundarmenn voru sautján talsins, sem er óvenju fjölmennt og því meira lýðræði í veðurvæntingum eins og nú er haft í hámælum í þjóðmálaumræðunni,“ segir í fréttatilkynningu frá veðurklúbbnum.
Við athugun á síðustu veðurspá og veðurfarssögu síðasta mánaðar voru klúbbfélagar almennt þeirrar skoðunar að veðurspáin hefði verið óvenju nákvæm og góð.
„Nýtt tungl kviknar föstudaginn 6. maí í vestri kl. 19:30. Það var álit fundarmanna að það ætti eftir að koma eitt leiðindaveðurskot í maí. Framan af mánuði má búast við fremur köldu veðri. Veður mun heldur skána eftir hvítasunnu en ekki verða umtalsverð hlýindi. Sleppur þó að mestu leyti við frostnætur. Vindáttirnar verða norðlægar framan af mánuði og síðan breytilegar áttir,“ segir í tilkynningu frá veðurklúbbnum.
„Reiknað er með að það dragist töluvert að veður hlýni eitthvað að ráði, en samkvæmt venju lætur veðurklúbburinn nægja að spá fyrir einn mánuð í einu þó svo að nokkrir klúbbfélagar séu komnir með hugmyndir um veðurfar síðar á árinu þá vill klúbburinn ekki uppýsa nánar um það fyrir en í júní og getur fólk beðið spennt eftir þeim spádómum,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.
Veðurvísa apríl og maí mánaðar.
Í apríl sumrar aftur
og ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið,
og fuglinn hreiður býr.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.