Urmull af gæðingum mætur á Svínavatn

Frá Ís- landsmóti 2008.

Skráningar á Ís-Landsmót sem fram fer á Svínavatni um helgina eru rúmlega 230 og er mótið því trúlega stærsta hestamannamót sem haldið verður norðan heiða í ári. Fjöldi stórstjarna meðal þátttakenda er slíkur að útilokað er að tilgreina einhverja sérstaka, en vísað á fyrirliggjandi ráslista þar um.

Dagskráin hefst við sólarupprás kl. 9.30. stundvíslega á B-flokk, síðan A-flokk og endað á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein.Áætlað er að mótinu ljúki kl. 18. Mótið verður tekið upp af Ben Media og verður aðgengilegt á vefsjónvarpi hestafrétta á sunnudag . Einnig verður bein útsending á hestafrettir.is ef ekki koma upp óvænt tæknileg vandamál á síðustu metrunum. Veðurspáin er mjög hagstæð, úrkomulaust, dálítið frost og nánast logn.

 Áhugafólk er hvatt til að mæta og sjá fullt af stórglæsilegum hrossum og þar af mikið af háttdæmdum keppnis og kynbótahrossum á þessu sterkasta ísmóti vetrarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir