Upp á topp með Tindastól!
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
02.02.2025
kl. 22.21
Arnar var í rallýgírnum í Garðabænum. Hér er hann á ferðinni gegn liði Grindavíkur fyrir rúmri viku. MYND: SIGURÐUR INGI
Það var toppslagur í Garðabænum í kvöld þar sem topplið Stjörnunnar tók á móti liði Tindastóls sem var í öðru sæti Bónus-deildarinnar. Stólarnir spiluðu vel bæði í sókn og vörn og tóku völdin í öðrum leikhluta. Þeir voru níu stigum yfir í hálfleik og náðu góðu forskoti í síðari hálfleik. Stjörnumenn áttu gott áhlaup í kjölfar þess að Drungilas fékk sína fimmtu villu en Arnar slökkti í þeim og Stólarnir smelltu sér á topp deildarinnar. Lokkatölur 82-90.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.