Umhverfisviðurkenningar ársins 2024 veittar í Húnaþingi vestra

Viðurkenningarhafar ásamt umhverfisnefnd og sveitarstjóra. MYND: HÚNAÞING.IS
Viðurkenningarhafar ásamt umhverfisnefnd og sveitarstjóra. MYND: HÚNAÞING.IS

Umhverfisviðurkenningar ársins 2024 í Húnaþingi vestra voru veittar þann 26. september 2024 á veitingastaðnum Sjávarborg á Hvammstanga. Árlega veitir sveitarfélagið þeim aðilum viðurkenningu sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Í frétt á heimasíðu Húnaþings segir að kallað hafi verið eftir tilnefningum íbúa og nefnd vegna umhverfisviðurkenninga, sem skipuð er af sveitarstjórn, sér um valið.

Í nefndinni frá 2022 sitja Birgir Þór Þorbjörnsson, Fríða Marý Halldórsdóttir og Borghildur H. Haraldsdóttir. Eigendum eftirtalinna eigna var veitt viðurkenning að þessu sinni:

Mýrar 3 - lóð, eigendur Guðrún Hálfdánardóttir og Gunnulaugur Guðmundsson. Viðurkenning veitt fyrir snyrtilega lóð við íbúðarhús í dreifbýli. Lóðin er smekklega hönnuð með gróðurhúsi, heitum potti og skjólveggjum ásamt vel hirtum gróðri. Fegrar garðurinn ásýnd svæðisins og sýnir hve annt eigendum er um umhverfi sitt.

Teigagrund 6, Laugarbakka, eigendur Pálína Fanney Skúladóttir og Hörður Gunnarsson. Viðurkenning veitt fyrir einstaklega fallega útfærða og hirta lóð fyrirtækis. Lóðin er skjólgóð með vel hirtum trjábeðum og flöt, heitum potti og gufubaði er haganlega fyrir komið. Ber lóðin öll eigendum gott vitni um virðingu fyrir umhverfi sínu.

Hvammstangabraut 27, eigendur Sesilía Helga Magnúsdóttir og Kristinn Björnsson. Viðurkenning fyrir snyrtilega lóð við íbúðarhús. Lóðin er afar vel hirt og augljós natni eigenda bæði við gróður og aðrar skreytingar. Lóðin gefur götumyndinni fallegan svip og ber eigendum gott vitni um snyrtimennsku og umhyggju fyrir umhverfi sínu.

Viðurkenningarhöfum er óskað til hamingju með viðurkenninguna.

Nánari upplýsingar um umhverfisviðurkenningar og viðurkenningarhafa liðinna ára er að finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir