Þriðji bekkur hlaut Gullskó Húnaskóla
Í lok september lauk í Húnaskóla verkefninu Göngum í skólann sem var í gangi í tvær vikur. Sagt er frá því á vef skólans að af þessu tilefni hafi verið haldin verðlaunaafhending fyrir utan skólann þar sem allir nemendur og starfsfólk skólans voru saman komnir og eftirvæntingin var töluverð. Allir bekkir stóðu sig vel en að þessu sinni var það 3. bekkur sem hlaut gullskóinn en þau mættu öll alla dagana hjólandi eða gangandi í skólann.
Sjöundi og áttundi bekkur voru saman í öðru sæti og 10. bekkur í því þriðja. Þetta er í fimmta sinn sem gullskórinn er afhentur, fyrst í Blönduskóla og núna í þriðja skiptið í Húnaskóla.
„Þó að verkefninu sé lokið viljum við hvetja nemendur og starfsfólk til þess að halda áfram að nota virkan ferðamáta á leið í og úr skóla (ganga eða hjóla). Eins viljum við minna á að bráðum fer að verða mjög dimmt á morgnana þegar börnin eru á leiðinni í skólann. Þá er mikilvægt að huga að viðeigandi öryggisbúnaði eins og endurskinsmerkjum á útifötin og ljós á hjólin – og auðvitað eiga allir alltaf að vera með hjálm þegar þeir eru á hjóli,“ segir á vef skólans.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.