Telma Björk í 1. sæti í myndasamkeppni Sjávarsælu
Það var sannkölluð Sjávarsæla á Sauðárkróki og mikið umleikis við höfnina í bænum. Þar var hægt að skoða ýmsa furðufiska og að venju var keppt í flotgallasundi, koddaslagi, reipitogi, kassaklifri og kappróðri þar sem áhöfn Klakks var sigursæl.
Þá bauð Fisk Seafood í skemmtisiglingu með Málmey SK1 og Siglingaklúbburinn Drangey bauð gestum einnig upp á siglingar í höfninni. Kærleiksbjörninn var á staðnum, 9. bekkur bauð upp á andlitsmálningu svo fátt eitt sé nefnt. Um kvöldið var gleðin við völd í Íþróttahúsinu þar sem haldið var ball í tilefni dagsins.
Ljósmynd Sigrúnar Heiðu Seastrand hafnaði í 2. sæti.
Efnt var til myndasamkeppni með glæsilegum vinningum frá Canon og Nýherja. Alls bárust á fimmta tug mynda og hér má líta vinningsmyndirnar.
- sæti: Telma Björk Gunnarsdóttir
- sæti: Sigrún Heiða Seastrand
- sæti: Sóley Guðmundsdóttir
Ljósmynd Sóleyjar Guðmundsdóttur var í 3. sæti.
Davíð Már Sigurðsson hafði umsjón með keppninni. Í valnefnd voru: Gunnhildur Gísladóttir ljósmyndari, Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri Feykis, Birgir Smári Sigurðsson f.h. Tengils, Erla Björk Helgadóttir, Davíð Þór Helgason og Rögnvaldur Ingi Ólafsson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.