Tap hjá Tindastól í gær

MYND HJALTI ÁRNA
MYND HJALTI ÁRNA

Tindastóll tók á móti nýliðum KR í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi. Vel var mætt í Síkið og heimamenn spenntir að sjá Tindastólsliðið undir stjórn Benedikts Guðmundssonar.

Leikurinn fór nokkuð jafnt af stað og bolti heimamanna rataði ekki í körfuna. Gestirnir voru skrefi á undan og um miðjan annan leikhluta slökktu þeir nánast á heimamönnum og náðu 15-2 kafla sem skilaði þeim 28-43 stöðu í hálfleik.

Það var allt annað Tindastólslið sem kom til leiks í þriðja leikhluta. Vörnin varð ákafari og það skilaði Stólum betri skotum sem þeir nýttu vel. Um miðjan leikhlutann var munurinn orðinn 2 stig og sveiflan með heimamönnum. Tóti túrbó jafnaði metin í 62-62 rétt fyrir lok þriðja leikhluta en Arnar Björnsson átti einn ás uppi í vinstri erminni og setti ótrúlegan flautuþrist frá miðju, 65-62 fyrir lokaátökin. Tindastóll vann þriðja leikhlutann með 18 stigum en náðu ekki að fylgja því eftir í þeim fjórða. Gestirnir unnu að lokum nokkuð þægilegan 85-94 sigur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir