Styttist í FabLabið á Hvammstanga

FabLab-könnuðir í heimsókn á Króknum. MYND: HUNAÞING VESTRA
FabLab-könnuðir í heimsókn á Króknum. MYND: HUNAÞING VESTRA

Undirbúningur að FabLab aðstöðu á Hvammstanga er nú hafinn en FabLab verður opin aðstaða í Félagsheimilinu Hvammstanga þar sem boðið verður upp á aðstoð við listræna og tæknilega afþreyingu fyrir alla einstaklinga. Í frétt á vef Húnaþings vestra kemur fram að til dæmis verði boðið upp á þrívíddarprentara, leiserskera, vínylskera og ýmis önnur tæki sem styðja við sköpunar- og framkvæmdagleði fólks.

Farið hefur verið í tvær vettvangsferðir til að skoða FabLab og fá hugmyndir og ráð. Ásamt tengslafulltrúa og sviðsstjóra fjölskyldusviðs hjá Húnaþingi vestra fóru Asmaa Ahmad Al Ebrahim, María Guðrún Theodórsdóttir, Freydís Emma Vilhelmsdóttir, Guðni Þór Alfreðsson og Jakob Friðriksson Líndal með sem álitsgjafar og fulltrúar ungmenna og deildu mikilvægum hugrenningum um málefnið. Farið var til Sauðárkróks og á Akranes þar sem tekið var vel á móti hópunum. Umsjónarmenn fræddu hópinn um búnað, uppsetningu, skipulag vinnuaðstöðu og margt fleira.

„Það eru því spennandi tímar framundan og hlökkum við til að kynna þessa áhugaverðu viðbót í Húnaþingi vestra í tengslum við nýja samfélagsmiðstöð. Stefnt er að íbúafundi í byrjun júlí til að fá hugmyndir íbúa um samfélagsmiðstöð á Hvammstanga,“ segir í fréttinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir