Stefanía, Amelía og Súsanna kepptu á Meistaramóti Íslands 15-22 ára

 Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir fór mikinn á mótinu. MYND AÐSEND
 Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir fór mikinn á mótinu. MYND AÐSEND

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára fór fram helgina 21. – 23. júní á Selfossi. Tindastóll átti þrjá keppendur á mótinu sem kepptu undir merkjum UMSS og stóðu sig með sóma.

Stefanía Hermansdóttir (21 árs) nældi sér í tvö silfur, annað í kringlukasti og hitt í spjótkasti.

Amelía Ýr Samúelsdóttir (15 ára) hljóp 80 metrana og lenti í 14 sæti. Hún endaði þrettánda í langstökki og tíunda í kringlukasti.

Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir (15 ára) nældi sér í silfur í 80 metra hlaupi og hljóp úrslitahlaupið á 11,10 sem er nýtt persónulegt met hjá henni. Annað silfur í 300 metra hlaupi einnig á nýju persónulegu meti, tími 45,05. Varð önnur í 80 metra grindarhlaupi og bætti í leiðinni sinn besta tíma úr 13,97 í 12,90. Þessi árangur er sömuleiðis undir viðmiði í úrvalshóp FRÍ fyrir hennar aldur. Enn eitt silfrið í 300 metra grindahlaupi á tímanum 52,46. Svo varð hún sjöunda bæði í hástökki og kúluvarpi. Varð níunda í langstökki. Sjötta í kringlukasti og tólfta í spjótkasti.

Heimild: Tindastóll.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir