SSNV auglýsir eftir tilnefningum
SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2023. Í frétt á heimasíðu SSNV segir að þetta sé í fimmta sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í mars 2024.
Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:
- Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
- Verkefni á sviði menningar.
Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum. Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni á síðasta ári fengu Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.
Tekið er við tilnefningum til miðnættis 24. janúar 2024 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti. Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér. Hér má finna upplýsingar um verkefni sem hlutu brautargengi úr Uppbyggingarsjóði fyrir árið 2023.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.