Spennandi tímar framundan á Norðurlandi vestra

Hluti ferðalanganna við kynningu í Svíþjóð. Einar fyrir miðju, Maggi honum á hægri hönd og Hólmfrríður lengst til hægri. MYND AF SSNV.IS
Hluti ferðalanganna við kynningu í Svíþjóð. Einar fyrir miðju, Maggi honum á hægri hönd og Hólmfrríður lengst til hægri. MYND AF SSNV.IS

Sem hluti af undirbúningi við mótun nýs þekkingargarðs á Sauðárkróki fóru á dögunum fjórir valinkunnir Skagfirðingar í ferð til Svíþjóðar. Í frétt á vef SSNV segir að erindi ferðarinnar hafi verið að kynnast starfsemi sambærilegra garða og efla tengsl við fyrirtæki og stofnanir þar í landi. „Það má margt læra af nágrönnum okkar í Svíþjóð sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í nýsköpun og tengingu skóla við atvinnulífið,“ segir í fréttinni.

Ferðin var kostuð með styrk sem Hátæknisetur Íslands hlaut úr Lóu nýsköpunarsjóði og er styrknum ætlað til að hanna þekkingargarða sem byggja á upp samhlið aðstöðu fyrir Háskólann á Hólum á Sauðárkróki. Ferðalangarnir fjórir voru Magnús Barðdal fulltrúi SSNV, Einar Einarsson forseti sveitarstjórnar í Skagafirði, Hólmfríði Sveinsdóttur rektor við Háskólann á Hólum og Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður.

„Nýsköpunarverkefnið Sægarðar á Sauðárkróki gengur út á að skipuleggja sérhæfða iðngarða þar sem einstakar aðstæður skapast til stuðnings við nýsköpun fyrirtækja og frumkvöðla á sviði sjálfbærs lagareldis og -ræktar. Hjarta garðanna er starfsemi Háskólans á Hólum sem snýr að námi og rannsóknum á sjálfbæru lagareldi og -rækt,“ segir ennfremur en verkefnið hlaut 4.140.000 kr. styrk úr Lóu nýsköpunarstyrk fyrir landsbyggðina.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir