Sorpmóttökustöðvarnar í Skagafirði lokaðar um verslunarmannahelgina og nýtt sorphirðudagatal

Sorpmóttökustöðin Flokka á Sauðárkróki, Farga í Varmahlíð og sorpmóttökustöðin á Hofsósi verða lokaðar um verslunarmannahelgina, laugardaginn 3. ágúst, sunnudaginn 4. ágúst og mánudaginn 5. ágúst, segir á vef Skagafjarðar. 

Allar upplýsingar um sorphirðu í Skagafirði er að finna hér á heimasíðu Skagafjarðar, þar er jafnframt að finna nýtt sorphirðudagatal þar sem götuheiti eða bæjarheiti er einfaldlega slegið inn og upp koma dagsetningar fyrir næstu losanir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir