Söngkeppni Friðar í Miðgarði í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
11.12.2015
kl. 10.52
Í dag 11. desember fer fram söngkeppni Friðar í Menningarhúsinu Miðgarði og hefst hún kl 19:30. Húsið opnar kl. 19 og eru allir velkomnir að koma og hlusta á þátttakendur. Á vef Svf. Skagafjarðar kemur fram að ellefu atriði eru á dagskrá ef allt gengur eftir.
Sigurvegari keppninnar verður fulltrúi Friðar í Norður-Org sem er undankeppni fyrir söngkeppni Samfés og eru það fulltrúar félagsmiðstöðva á Norðurlandi sem taka þátt í þeirri keppni. Sjálf söngkeppni Samfés verður síðan í mars.
Að lokinni söngkeppninni í kvöld verður slegið upp jólaballi í Miðgarði sem stendur til kl 23.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.