Sólon Morthens á fleygiferð

Sólón Morthens tekur við viðurkenningu úr hendi Líneyjar Hjálmarsdóttur. Myndina tók Þórir Tryggvason

Sólon Morthens, nemandi á 2. ári hestafræðideildar í tamningum, náði nú á dögunum góðum árangri þegar hann hafnaði í öðru sæti á opna Bautamótinu í tölti á hryssunni Kráku frá Friðheimum. Á mótinu sem var haldið þann 21. febrúar í Skautahöllinni Akureyri hlaut hann einnig viðurkenningu frá norðurdeild Félags tamningamanna fyrir fágaða og prúðmannlega reiðmennsku.Tveir nemendur Háskólans á Hólum voru í úrslitum á mótinu því Þórdís Erla Gunnarsdóttir, nemandi á 3. ári hestafræðideildar í Þjálfun og reiðkennslu, hafnaði í fimmta sæti á hryssunni ungu Frægð frá Auðsholtshjáleigu. Frábær árangur hjá þeim Sóloni og Þórdísi.

Áður hafði Sólon riðið til sigurs í tölti á hryssunni Kráku á ísmóti Riddara norðursins sem haldið var 14. febrúar síðastliðinn á Sauðárkróki. Sólon er nú í verknámi hjá Sölva Sigurðarsyni að Hofi á Höfðaströnd í Skagafirði. Sólon og kona hans Þórey Helgadóttir koma frá Hrosshaga í Bláskógarbyggð en búa núna á Hólum ásamt fjórum börnum sínum, þeim Natani Frey 10 ára, Tristani Mána 3 ára og tvíburunum Fjölni Þór og Dagmar Sif sem eru 1 árs.

 

 

 

 

 

Myndina tók Þórir Tryggvason

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir