Smalahundakeppni í Vatnsdal um helgina

MYND: smalahundur.123.is
MYND: smalahundur.123.is

Smalahundafélag Íslands stendur fyrir landskeppni smalahunda nú um helgina og fer keppnin fram á Ási í Vatnsdal. Keppt verður í unghundaflokki, A-flokki og B-flokki. Keppni hefst klukkan 10 bæði laugardag og sunnudag. 

Félagið heldur jafnframt aðalfund sinn í aðdraganda helgarinnar og fer hann fram í Fellsbúð við Undirfellsrétt í Vatnsdal í kvöld klukkan 19. Eingöngu félagar í SFÍ hafa keppnisrétt.

Allir velkomnir að koma og fylgjast með keppninni.

Nánari upplýsingar HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir